„Fyrsta vaktin er launað starf utan heimilis og önnur vaktin er að gera eða framkvæma heima við eða þá tengt heimili eða vinnu. Það getur verið að ryksuga heima eða versla í matinn, keyra ömmu til læknis, vökva blómin í vinnunni svo dæmi sé tekið. Það er mjög sýnilegt hver er á annarri vaktinni en þriðja vaktin er ósýnileg. Hún er þetta utanumhald, yfirsýn, að gera ráð fyrir, að sjá fyrir og líka þessi tilfinningalegi stuðningur, natni, að gera huggulegt, hlúa að tengslum, hlúa að tilfinningum annarra, passa upp á að fólkinu okkar líði vel, börnin okkar hafi það sem þau þurfa og síðan allt þetta jólagjafirnar, fatastærðirnar, afmælisdagarnir, sólarvörnin og vegabréfin. Allir þessir hlutir sem þarf að muna eftir,“ segir Hulda spurð að því í samtali við mbl.is hvað þriðja vaktin sé.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/07/04/safna_fyrir_bok_um_osynilegu_vaktina/